Mikið að gerast í menningarlífinu á Akureyri

Það er mikið að gerast í menningarlífinu á Akureyri um helgina. Flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, því í boði er myndlist, tónlist, leiklist og fleira. Haraldur Ólafsson uppstoppari á Akureyri opnar sýningu á einu listaverka sinna í Jónas Viðar Gallery í Listagilinu í dag, laugardag, kl. 15.00. Sýningin stendur fram á föstudag í næstu viku. Haraldur sýnir uppstoppaðan lax, listaverk sem hann fór með á Heimsmeistaramót í Austurríki í febrúar sl. Þar keppti hann í svokölluðum masterflokki og hafnaði verk hans í 2. sæti í fiskaflokki. Sveinbjörg Hallgrímsdóttir opnar sýningu á nýjum handþrykktum tréristum á bókasafni Háskólans á Akureyri í dag kl. 14.00 - 17:00. Sýningin mun standa til 16. maí nk. Í verkum sínum fjallar hún um höfuðprýði Íslands, hálendið og jöklana sem hægt og bítandi bráðna og renna út í sandinn.

Sýningin "Hreingjörningur í lit" unnin og flutt af Önnu Richardsdóttur dansara og gjörningalistakonu, Brynhildi Kristinsdóttur og Jónu Hlíf Halldórsdóttur, myndlistakonum, Kristjáni Edelstein og Wolfgang Sahr tónlistamönnum, ásamt Þorbjörgu Halldórsdóttur leikmyndahönnuði, verður flutt í bílageymslu við Norðurorku á Rangárvöllum, í kvöld kl. 20.30. Jóhannes Dagsson opnar myndlistasýninguna „Stöðumyndir" í DaLí Gallery á Akureyri í dag kl. 17.00. Efnivið sinn sækir Jóhannes í tvö af fyrirferðarmeiri menningarfyrirbærum liðinnar aldar, modernisma og fótbolta. Sýningin stendur til 27. apríl og er opin föstudaga og laugardaga kl. 14-17 og eftir samkomulagi. Mikill áhugi er á tónleikum Þursaflokksins á Græna hattinum um helgina og er uppselt á þá tvenna tónleika sem áætlaðir voru. Ákveðið hefur verið að bæta við aukatónleikum á miðnætti í kvöld. Hlynur Hallsson myndlistarmaður verður með leiðsögn um sýninguna "Bæ bæ Ísland" í Listasafninu á Akureyri, sunnudaginn 13. apríl nk. kl. 14.00. Hlynur er einn þátttakenda í sýningunni. Leiðsögnin ásamt umræðum mun standa yfir í um 40 mínútur og er öllum opin.

Þá eru í boði leiksýningar hjá Leikfélagi Akureyrar, Freyvangsleikhúsinu í Eyjafjarðarsveit og Leikdeild Eflingar á Breiðumýri í Reykjadal.

Nýjast