Jóhann Máni Jóhannsson er einn fremsti kvikmyndatökumaður á Íslandi. Hann hefur gert tónlistarmyndbönd, auglýsingar. Hann hefur einnig tekið upp Spaugstofuna og Áramótaskaup sjónvarpsins. Hann tók þátt í því að koma SkjáEinum á laggirnar og vann þar í rúm fimm ár. Skemmtilegast finnst honum þó að taka upp samfellda sögu – eins og leikna þætti og bíómyndir.
Jóhann Máni er um þessar mundir að vinna við upptökur á heimildarmynd um Reyni sterka í leikstjórn Baldvins Z. Skarpur sló á þráðinn til hans á föstudagskvöld fyrir rúmri viku, klukkan var að verða hálf tíu og Jóhann var rétt kominn inn um dyrnar heima hjá sér eftir þrettán tíma á tökustað. Það lá mjög vel á honum, hann hljómaði ekki vitund þreyttur og var bara meira en til í að eyða hálftíma í símanum með blaðamanni Skarps.
Strax á unglingsárum fer áhuginn á að taka upp kvikmyndir að gera vart við sig. Vinur Jóhanns, Heiðar Kristjánsson kom þar við sögu. „Heiðar eignaðist litla super vhs vél og þá fórum við að gera stuttmyndir,“ segir Jóhann.
Ítarlegt opnuviðtal við Jóhann Mána má nálgast í prentútgáfu Skarps.
- Skarpur, 7. júlí