Metaðsókn á Handverkshátíðina á Hrafnagili

Metaðsókn er á Handverkshátíðina á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit og nýjustu tölur sýna að á þriðja degi af fjórum hafa yfir 15 þúsund manns sótt hana heim. Bros á hverju andliti í 20 stiga hita og sól hefur skapað frábæra stemningu á hátíðarsvæðinu.  

Hönnunarsamskeppni um nýsköpun í ullarvörum var í tengslum við sýninguna og þá þótti við hæfi að sýna rúning á ullinni.  Birgir Arason rúningsmaður sýnir daglega vélrúning og fékk til liðs við sig konur í sveitinni með rokkinn og sátu þær við spuna.  Margt er um óvenjulegt hráefni á svæðinu sem hefur vakið eftirtekt.  Tískusýningar, fyrirlestrar og námskeið krydda dagskrána í hvívetna.

Að þessu sinni er staðið að hátíðinni á annan máta en hefur verið því öll félögin í sveitinni hafa lagt hönd á bagga. Lionsklúbburinn Vitaðsgjafi, þrjú kvenfélög, Ungmennafélagið Samherjar og Hjálparsveitin Dalbjörg ásamt gríðarlegum fjölda tónlistarfólks og skemmtikrafta, allt fólk sem tengist Eyjafjarðarsveit á einn eða annan hátt.  Handverkskona ársins 2009 var verðlaunuð á kvöldvöku í gær og þann titil hlaut Guðrún Ásgerður Steingrímsdóttir handverkskona með meiru. Hátíðin er vel heppnuð í alla staði og verður opin á morgun mánudag milli 12-19. 

Nýjast