Margot og Gunnar á tónleikum í Laugarborg

Söngkonan Margot Kiis og Gunnar Hrafnsson kontrabassaleikari halda tónleika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit fimmtudaginn 23. október nk. kl. 20.30. Á efnisskránni eru ýmis erlend og íslensk djasslög, sem Margot og Gunnar hafa útsett.
 

Þau Margot og Gunnar hafa haldið tónleika á Djasshátíð í Reykjavík árin 2002 og 2004 ásamt stórri hljómsveit og í ágúst sl. léku þau sem dúó á Siglufirði. Árið 2007 gaf Margot út djassplötuna; My Romance, þar sem Gunnar lék með ásamt fleirum.

Nýjast