Malbikaður skógarstígur í Kristnesskógi formlega opnaður

Margir áningarstaðir eru á stígnum og hægt að staldra við bæði inni í þéttum skógi
og á útsýnisstöð…
Margir áningarstaðir eru á stígnum og hægt að staldra við bæði inni í þéttum skógi og á útsýnisstöðum þar sem sést yfir Eyjafjarðarsveit. (skogur.is)

Í gær, þriðjudag var formlega opnaður nýr endurhæfingar- og útivistarstígur í Kristnesskógi í Eyjafirði. Stígurinn er malbikaður og hannaður með þarfir hreyfihamlaðra í huga svo sem flestir geti notið útivistar og hreyfingar í skóginum. Stígurinn er steinsnar frá Kristnesspítala þar sem rekin er endurhæfingardeild og öldrunardeild. Með þessum stíg skapast einstök aðstaða til útivistar og endurhæfningar. 

Við opnunina flutti formaður Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri og nágrenni, ávarp, einnig Ingvar Þóroddsson yfirlæknir og Rúnar Ísleifsson skógarvörður. 

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitti styrki til framkvæmdanna á þessu ári og því síðasta. „Stígurinn verður kærkominn fyrir alla gesti skógarins en þó ekki síst fólk sem nýtur aðhlynningar og endurhæfingar á Kristnesspítala þar sem er bæði endur­hæfingar­deild og öldrunarlækningadeild,“ segir á vef Skógræktarinnar.

Nýjast