Mála tröppur í öllum regnbogans litum

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin dagana 18.-22. júní 2025.

Í dag klukkan 17:00 ætlum við að mála saman í öllum regnbogans litum hluta af tröppunum niður að sundlauginni á Þelamörk í Hörgársveit. Fyrir þau yngri verður í boði að mála steina, það má gjarnan koma sjálf með steina að heiman en það verða þó einhverjir í boði á staðnum. Þegar búið er að mála verða grillaðar pylsur í boði og tilvalið að skella sér í síðan sund.

Öll velkomin, skemmtileg fjölskyldustund sem allir geta tekið þátt í!

Nýjast