Magni tapaði þriðja leiknum í röð

Magni tapaði sínum þriðja leik í röð í 2. deild karla í knattspyrnu er félagið beið ósigur á heimavelli gegn liði Hamars sl. föstudag. Lokatölur á Grenivíkurvelli urðu 2-1 sigur Hamars.

Mark Magna í leiknum skoraði Símon Símonarsson en þeir Jón Kári Ívarsson og Kristinn Ingi Halldórsson skoruðu mörk Hamars. Eftir 12 umferðir er Magni í 10. sæti deildarinnar með tíu stig.

Nýjast