Lið Magna sem leikur í 2. deild karla tapaði öðrum leiknum sínum í röð þegar þeir sóttu Aftureldingu heim um helgina. Lokatölur urðu 2-0 fyrir Aftureldingu. Mörk heimamanna skoruðu Tómas Þorsteinsson ( 13. mín ) og Paul Clapson ( 84. mín ).
Magni situr á botni deildarinnar án stiga eftir tvo leiki og ljóst að eitthvað verður að fara breytast hjá liðinu ef ekki á illa að fara.