„Lykillinn að gera grín að sjálfum sér"

"Á meðan hinir fóru á djammið var ég upp á hóteli í svitakófi að reyna að láta mér detta eitthvað fyndið í hug."

Henni var ýtt út í grínið á sínum tíma og samdi sitt fyrsta uppistand á hótelherbergi á Akureyri. Saga Garðarsdóttir, leikkona, handritshöfundur, uppistandari og grínari hefur undanfarna mánuði dvalið á Akureyri þar sem hún undirbýr leiksýninguna, „Þetta er grín án djóks“, sem frumsýnt verður í Menningarhúsinu Hofi eftir viku. Saga skrifar og fer með aðalhlutverk í ásamt Dóra DNA.

Hún segir leikverkið muni kitla hláturtaugarnar en þó hafa alvarlegan undirtón. Í opnuviðtali í Vikudegi ræðir Saga sýninguna, samstarf sitt við Dóra DNA, æskuna og margt fleira.

-þev

Nýjast