Löngu tímabært að ná sátt um stjórn fiskveiða

Kristján Vilhelmsson formaður Útvegsmannafélags Norðurlands mætti á fund bæjarráðs Akureyrar í gær en  hann hafði  óskað eftir að koma á fund ráðsins og ræða fyrirhugaða fyrningarleið í sjávarútvegi. Bæjaráð telur löngu tímabært að skapa vinnufrið í íslenskum sjávarútvegi og ná sátt um stjórn fiskveiða.  

 

Formaður lagði fram tillögu að svohljóðandi bókun: Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs segir m.a.:  
   "Íslenskur sjávarútvegur mun gegna lykilhlutverki við þá endurreisn atvinnulífsins sem framundan er.  Það er því afar mikilvægt að skapa greininni bestu rekstrarskilyrði sem völ er á og treysta þannig rekstrargrundvöllinn til langs tíma, en jafnframt verði leitað sátta um stjórn fiskveiða."
Bæjarráð Akureyrar tekur heilshugar undir þetta. Það er löngu tímabært að skapa vinnufrið í íslenskum sjávarútvegi og ná sátt um stjórn fiskveiða. Bæjarráð leggur áherslu á að við fyrirhugaða endurskoðun laga um stjórn fiskveiða verði haft samráð við hagsmunaaðila í sjávarútvegi með það að markmiði að tryggja að fiskveiðar og vinnsla Íslendinga skapi þjóðinni sem mest verðmæti.  Jafnframt verði áhersla lögð á að eyða eins fljótt og kostur er þeirri óvissu sem skapast hefur vegna þessarar fyrirhuguðu endurskoðunar.

Meirihluti bæjarráðs samþykkti framlagða bókun. Jóhannes Gunnar Bjarnason sat hjá við afgreiðslu og Oddur Helgi Halldórsson áheyrnarfulltrúi tók ekki afstöðu til bókunarinnar.

Nýjast