Lokun hjúkrunardeildarinnar í Seli á FSA mótmælt

Stjórn KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu varar við lokun hjúkrunardeildarinnar í Seli á FSA. Lokun deildarinnar og flutningur skjólstæðinga hennar hefur viðtæk áhrif svo sem á hjúkrun sjúklinga í heimahúsum og endurhæfingu sjúklinga þar sem bið eftir henni lengist og veldur það öllu samfélaginu tjóni.  

Að auki kemur það þvert á stefnu í öldrunarmálum að fleiri einstaklingar deili herbergjum saman á öldrunarheimilum. Sú ákvörðun stjórnenda FSA að hætta starfssemi í Seli með svo skömmum fyrirvara hefur í för með sér uppsagnir og verulega skerðingu á þjónustu og gengur þvert á það sem nú er brýnast að gera, stórefla velferðarþjónustuna og styrkja öryggisnet fjölskyldnanna.

Stjórn KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, skorar á stjórnendur FSA að draga ákvörðun sína til baka og leita annarra leiða til hagræðingar í samráði við starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar, samtök launafólks, fjöldahreyfingar sjúklinga, öryrkja, eldri borgara og annarra aðila sem hagsmuna hafa að gæta varðandi gæði og skilvirkni heilbrigðiskerfisins.

Nýjast