Lokaorðið - Ég tel mig hafa bjargað þjóðarbúinu

Tryggvi Gunnarsson átti Lokaorðið í blaðinu s.l. fimmtudag
Tryggvi Gunnarsson átti Lokaorðið í blaðinu s.l. fimmtudag

Eins og margir aðrir landsmenn þá höfum við hjónin ásamt góðum vinum lagt land undir fót í sumar. Austurlandið og Norðausturlandið hafa verið skoðuð þvert og endilangt. Fontur hefur lengi verið í uppáhaldi hjá okkur hjónum og alltaf sjáum við eitthvað nýtt þegar við förum á Font. Ekki skemmir fyrir að undirritaður sleit ófáum strigaskónum í nágrenni Fonts á yngri árum og má segja að bændur á svæðinu búi enn að því að hafa fengið dugmikinn dreng af malbikinu til sín.

Miðfjörðurinn var mitt leiksvíð

Eflaust drýpur smjör af hverju strái þarna núna eins og forðum eða ég vona að svo sé ennþá. Miðfjörðurinn var leiksvið mitt í nokkur sumur þegar ég var ungur drengur. Ábúendur á Miðfjarðarnesi, systkinin Jóhanna og Friðrik, tóku mér vel og má segja að þarna hafi ég lært margt sem hefur reynst mér vel í gegnum tíðina. Stundvísi var eitt af lykilorðum hjá þeim systkinum og kom það fyrir að ég missti af kvöldmatnum þar sem ég hreinlega gleymdi mér á þessu stóra leiksviði. Ekki kom það að sök missa úr einn og einn matartíma og í sjálfu sér hefði ég stundum gott að því sleppa kvöldmat þessa dagana líka, en það er önnur saga.

Langt ferðalag út Breiðholtinu

Jafnframt var það mjög svo eftirminnilegt að þegar fór að vora og stefnan sett á Miðfjarðarnes. Ekki neinn smátúr að ferðast úr Breiðholtinu og tók þetta ferðalag nokkra daga. Stoppað fyrst í Staðarskála hinum forna í eina nótt, síðan var gist hjá ættingjum á Akureyri og dagur þrjú var notaðar til að komast á leiðarenda. Eflaust hafa foreldrar mínir lagt þetta ferðalag á sig til að losna við mig eins langt frá sér og hægt var en ég leit frekar á þetta sem þróunarstarf til heilla fyrir sveitir landsins. Að vera á milli Gunnólfsvíkursfjalls og Bakkafjarðar í góðri sumarsetu var gefandi, skapandi og þroskandi. En að sjálfsögðu þegar líða fór á sumarið var hugur minn byrjaður að hallast heim í Breiðholtið.

Það var alltaf gott að komast heim vitandi að ég var búinn að gera gagn þjóðarbúinu til heilla.

Nýjast