Lögreglan lokaði Miðhúsabraut að kröfu Vegagerðarinnar

Lögreglan á Akureyri lokaði nýja vegarkaflanum á Miðhúsabraut upp úr hádegi í dag að kröfu umferðareftirlitsmanns Vegagerðarinnar. Fyrirtækið GV gröfur er að vinna við frágang á þessum kafla og að sögn Guðmundar Gunnarssonar framkvæmdastjóra er ástæða lokunarinnar sú að eftirlitsmaður Vegagerðirnar gat ekki sætt sig við umferð um götuna þar sem GV gröfur notuðu svokallaða búkollur (stóra efnisflutningabíla) við verkið. "Það stendur hvergi í lögum að loka þurfi vinnusvæði þar sem búkollur eru í notkun og þessi ákvörðun er ekki frá okkur komin. Vegfarendur geta þakkað Sævari Inga Jónssyni umferðareftirlitsmanni Vegagerðarinnar fyrir það. Í lögunum segir m.a. að búkollur séu ætlaðar til notkunar utan vega og/eða á vinnusvæðum en það stendur ekkert um það í umferðarlögunum að loka þurfi vinnusvæðunum, enda leyfir Vegagerðin sjálf notkun námubifreiða á vinnusvæðum, þar sem umferð er. Þrátt fyrir það ákvað lögreglan hins vegar að verða við ósk umferðareftirlitsmannsins og loka götunni," sagði Guðmundur og bætti við að Miðhúsabraut heyrði undir Akureyrarbæ en ekki Vegagerðina og því væri þessi ákvörðun um lokun enn furðulegri.

Nýjast