Logi Már býður sig fram í þriðja sæti hjá Samfylkingunni

Logi Már Einarsson arkitekt hefur ákveðið að bjóða sig fram í þriðja sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar  í Norðausturkjördæmi. "Ég er 44 ára arkitekt, búsettur á Akureyri, kvæntur Arnbjörgu Sigurðardóttur, lögmanni.  Ég á tvö börn;  Úlf 11 ára og Hrefnu 4 ára. Ég rek ásamt öðrum  arkitektastofuna Kollgátu og hef mikla reynslu á  sviði mannvirkjagerðar og skipulagsmála," segir Logi Már.  

"Þörf er á siðbót í stjórnmálum.  Virðingu Alþingis þarf að endurreisa með vönduðum vinnubrögðum, ekki snoturri umgjörð.   Ég vil auðmjúka stjórnmálamenn sem  týna sér ekki í smáatriðum heldur einbeita sér að heildarmyndinni.   Gleyma sér ekki eingöngu í verkefnum dagsins heldur hafa kjark og þor til að horfa til framtíðar.  Viðurkenni takmörk sín og séu duglegir við að leita til sérfræðinga.  Alþingismenn  verða að bregðast við kröfum almennings um  beinni þátttöku og opnari umræðu.   Alþingi á að endurspegla þarfir og óskir fólksins.  Þess vegna þurfum við  meiri fjölbreyttni á þing;  konur og karla á öllum aldri, með ólíkan bakgrunn.  En umfram allt hugmyndaríkt fólk, með sjálfstæðar skoðanir, sem þorir að standa gegn flokksræðinu. Vandi fyrirtækjanna er vandi heimilanna og rekstarumhverfi þeirra verður að tryggja.  Vandamálin verða ekki eingöngu leyst með skammtímalausnum, þó þær séu bráðnauðsynlegar.  Við verðum að tryggja stöðugra efnahagsumhverfi,   svo fyrirtæki og heimili geti gert áætlanir til lengri tíma.  Upptaka Evru er nauðsynlegur liður í því.  Við eigum að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið strax  og bera síðan þann samning undir þjóðina. Ég býð mig því fram í þriðja sæti listans en hvet kjósendur jafnframt til þess að velja konu í annað af tveimur efstu sætunum," segir Logi Már ennfremur.

Nýjast