Ljósmyndasamkeppni á Akureyrarvöku

Á föstudaginn verður Akureyrarvaka sett í Lystigarðinum á Akureyri og stendur hún yfir fram á miðnætti laugardaginn 29. ágúst.  Dagskráin er afar fjölbreytt og víða stigið niður fæti þar sem allir ættu að finna eitthvað sem vekur áhuga.  Meðal nýjunga er ljósmyndasamkeppni þar sem allir eru hvattir til að taka þátt og láta ljós sitt skína.  

Þemað er eitthvað sem hentar bæði gestum og íbúum bæjarins en það snýst um að taka ljósmynd sem lýsir þeirri notalegu stemningu sem Akureyri er þekkt fyrir og gerir það að verkum að fólk vill gjarnan njóta lífsins einmitt á Akureyri.  Þeir sem telja sig hafa náð einmitt þessari mynd á Akureyrarvöku eru hvattir til að senda (hámark 2 myndir) á netfangið ljosmynd@akureyri.is og er myndin ætluð til notkunar í kynningarefni fyrir bæinn.  Pedromyndir munu verðlauna sigurvegarann.

Ljósmyndir skipa einmitt stóran sess á Akureyrarvöku þetta árið með opnunum eftirfarandi ljósmyndasýninga:  
*  Í Listasafninu á Akureyri opnar sýningin Úrvalið:  Íslenskar ljósmyndir 1866-2009.  Sýningarstjóri er Einar Falur Ingólfsson.
*  Á Glerártorgi opnar sýningin Friður fyrir komandi kynslóðir.  Sýningin er sögu- og ljósmyndasýning með áherslu á mannleg gildi og hetjulega baráttu þeirra Mahatma Gandhis, Martins Luthers King og Daisaku Ikedas fyrir betri heimi.
*  Í Ketilhúsinu opnar sýningin Kreppa og kærleikur - Nýir Íslendingar í nýju landi og  hluti þeirrar sýningar eru ljósmyndir Henriks Saxgren.
*  Á Glerártorgi opnar einnig sýning krakka úr Vinnuskólanum á Akureyri þar sem ásýnd Akureyrar í augum ungmenni er þemað.

Nýjast