Lítur vel út með flug milli Íslands og Grænlands í sumar

"Við erum að klára pakkann, að ganga frá ýmsum hlutum,"  segir Friðrik Adolfsson sem skrifaði á dögunum undir viljayfirlýsingu fyrir hönd nokkurra fjárfesta vegna sölu á rekstri  Twin Otter  flugvéla Flugfélags Íslands.  Saga Capital Fjárfestingabanki hafði milligöngu í málinu. Friðrik segir að útlit sé fyrir að nóg verði að gera varðandi flug milli Íslands og Grænlands á komandi sumri og bjart framundan hvað það varðar, "það lítur bara vel út með Grænland, mikið verður að gera í fluginu í sumar og ýmislegt í pípunum fyrir næstu ár," segir hann.

Friðrik er núverandi sölustjóri leiguflugs hjá Flugfélagi Íslands og hefur meðal annars verið ábyrgur fyrir umfangsmiklum leiguverkefnum Twin Otter á Grænlandi. Hann mun láta af störfum hjá Flugfélagi Íslands og snúa sér alfarið að þessum rekstri. Gert er ráð fyrir að nýir aðilar taki við rekstrinum frá 1. júní nk. Kaupverð er trúnaðarmál. Um er að ræða tvær Twin Otter flugvélar og tengdan rekstur en helstu verkefni hafa verið áætlunarflug út frá Akureyri til Grímseyjar, Vopnafjarðar og Þórshafnar, leiguverkefni á Grænlandi og viðhaldsverkefni í viðhaldsstöð félagsins á Akureyri. Um tuttugu manns vinna við rekstur Twin Otter vélanna á Akureyri, aðallega flugvirkjar og flugmenn.

Nýjast