Sigurvin Jónsson, jafnan þekktur sem Fíllinn, varð landskunnugur þegar hann sigraði keppnina Fyndnasti maður Íslands árið 2002. Fram að því að hafði hann aldrei komið nálægt uppistandi. Hann var lagður í einelti í æsku, glímdi við mikla feimni og missti systur sína sem situr fast í honum.
Sigurvin stendur nú á ákveðnum krossgötum í lífinu þar sem hann gengur í gegnum skilnað og er að venjast nýju hlutverki. Í prentútgáfu Vikudags ræðir Sigurvin sorgina og sigrana í lífinu.