Lið Menntaskólans í Reykjavík lagði lið Menntaskólans á Akureyri í úrslitaviðureign í spurningakeppni framhaldsskólanna
Gettu betur nú í kvöld. Lokabarátta viðureignarinnar var mjög spennandi þar sem lið MA náði að knýja fram bráðabana
með því að innbyrða sjö síðustu stigin í keppninni og jafna viðureignina 26-26. Í bráðabana hafði MR betur og tryggði
sér sigur í keppninni 28-26. Úrslitakeppnin fór fram í Vetrargarðinum í Smáralind og var sýnd í beinni útsendingu
Sjónvarps og send út á Rás 2.