Lið Akureyrar í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV, er að þessu sinni skipað þeim Jóhanni Davíð Ísakssyni, Urði Snædal sem einnig tók þátt í fyrra og Þorsteini G. Jónssyni.
Þau voru valin úr fjölda ábendinga sem bárust eftir að auglýst var eftir tillögum að keppendum. Liðið mun nú án efa leggjast í mikinn alfræðiorðabókalestur og leikæfingar á meðan beðið er eftir dagsetningu keppninnar frá RÚV.