Akureyrarbær mun leggja niður leikskólann Hlíðaból sumarið 2017. Í bréfi til foreldra leikskólabarna á Hlíðabóli frá bæjaryfirvöldum segir að eftir ígrundun og með tilliti til töluverðar fækkunar í hópi leikskólabarna á næstu árum sé þessi ákvörðun tekin. Samkvæmt upplýsingum Vikudags eru margir foreldrar ósáttir við fyrirhugaða lokun þar sem þetta er eini leikskólinn í hverfinu en lengri frétt um þetta mál má sjá í prentúgáfu Vikudags.
-Vikudagur, 31. mars