Smitið greindist hjá starfsmanni á legudeild sjúkrahússins í gær þar sem 20 sjúklingar liggja inni. Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir í samtali við Rúv að deildinni hafi verið lokað um leið og smitið kom upp. Hingað til hafa öll þau sýni sem hafa verið tekin verið neikvæð.