Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður samgöngunefndar, hyggst leggja að nýju fram frumvarp á Alþingi í næstu viku um að Reykjavíkurflugvöllur, Egilsstaðarflugvöllur og Akureyrarflugvöllur fari undir sama hatt. Frumvarpið var lagt fram fyrir um ári síðan en ekki tókst að afgreiða það á tilsettum tíma.
Höskuldur segir í samtali við Vikudag að mikilvægt sé að tryggja aðkomu fulltrúa allra þjóðarinnar með einum eða öðrum hætti að flugvöllunum. Hann vill að skipuð verði nefnd sem fari með málefni þessara flugvalla á sambærilegan hátt og málefni Keflavíkurflugvallar. Þannig sé hægt að koma í veg fyrir ágreining eins og ríkt hefur verið um málefni Reykjavíkurflugvallar. Nánar er fjallað um þetta mál í prentútgáfu blaðsins.
-Vikudagur, 12. febrúar