László Szilágyi hættur hjá Magna

Ungverski miðjumaðurinn í liði Magna, László Szilágyi, er hættur hjá liðinu. Síðasti leikur hans með Magna var tapleikurinn gegn BÍ/Bolungarvík á dögunum í 2. deild karla í knattspyrnu.

Þessi 32 ára gamli leikmaður kom til Magna sl. vor og var því að leika sitt annað tímabil með liðinu. Þetta er mikil blóðtaka fyrir lið Magna sem stendur í ströngu í neðri hluta í 2. deildarinnar.

Ekki liggur fyrir hverjar ástæður brotthvarfsins eru.

Nýjast