Landsvirkjun styður áfram við Háskólann á Akureyri

Háskólinn á Akureyri og Landsvirkjun hafa undirritað samstarfssamning um rannsóknir. Samningurinn er framlenging á fyrri samningi sem var upprunalega gerður í apríl 2001 og framlengdur 2007. Markmið samningsins er að efla grunnrannsóknir á þeim fagsviðum er tengjast rannsóknum og nýtingu á orkulindum landsins og áhrifum hennar á samfélag og umhverfi.  

Það verður gert með því að styrkja kennslu og rannsóknir við Háskólann á Akureyri. Árlegt framlag Landsvirkjunar til háskólans nemur einu stöðugildi prófessors og á móti kemur árlegt vinnuframlag sérfræðinga Háskólans við rannsóknarverkefni og sérfræðistörf fyrir Landsvirkjun.

Meðal verkefna sem sérfræðingar Háskólans á Akureyri hafa unnið að undanfarið og munu vinna á næstunni í tengslum við samninginn eru:

  • Gerð áhættumats fyrir Landsvirkjun vegna fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda fyrirtækisins á háhitasvæðunum á norðausturlandi undir stjórn Axels Björnssonar prófessors.
  • Úttekt á grunnvatni og afrennsli grunnvatns frá Þeistareykjum og Gjástykki undir stjórn Hrefnu Kristmannsdóttur prófessors. Sú úttekt verður liður í almennu umhverfismati vegna fyrirhugaðra virkjana.

Áformuð eru frekari samstarfsverkefni í tengslum við virkjun háhitasvæðanna á norðausturlandi.

Nýjast