Lagasetning í undirbúningi vegna Bakka

Séð yfir iðnaðarsvæðið á Bakka. Mynd: epe
Séð yfir iðnaðarsvæðið á Bakka. Mynd: epe

Stjórnarráðið leitar nú leiða til að komast hjá þeim alvarlegu afleiðingum sem hlotist geta af því lagning háspennulína frá Þeistareykjavirkjun tefst eða verður bönnuð. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Sigurður Ingi Jóhannesson forsætisráðherra leiðir vinnuna samkvæmt heimildum blaðsins, en málið fellur undir verksvið fleiri ráðherra.

Eins og sagt hefur verið frá hér á dagskrain.is felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nýverið tvo úrskurði um stöðvun framkvæmda vegna ákvarðana sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar um að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrir Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4. Úrskurðirnir eru til bráðabirgða á meðan nefndin fjallar um kærur Landverndar vegna útgáfu framkvæmdaleyfanna. Úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála er með kæru Landverndar vegna útgáfu framkvæmdaleyfa fyrir lagningu línanna að iðnaðarsvæðinu á Bakka, til umfjöllunar og er búist við úrskurði í málinu fyrir áramót.

Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að rætt hafi verið að setja lög á deiluna eða að skerpa á ákvæðum nýlegra náttúruverndarlaga, svo verkefni sem komin voru af stað fyrir gildistöku laganna verði ekki stöðvuð.

Áður hefur Valgerður Gunnarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norðausturkjördæmi lýst yfir þungum áhyggjum yfir málinu og bent á að ef hætt yrði við verkefnið sem hafið er á Bakka vegna þessa, þá gæti það haft í för með sér gjaldþrot sveitarfélagsins Norðurþings.

Nýjast