Kynning á Norræna menningar- sjóðnum á Akureyri

Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri stendur fyrir kynningu á Norræna menningarsjóðnum á Akureyri og mögulegri fjármögnun til menningarstarfs, í Ketilhúsinu föstudaginn 16. október nk. kl. 13-16 og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Flestir þeir sem vinna með menningartengd verkefni þurfa að sækja um styrki til fjármögnunar þeirra.  

Til hvaða verkefna, frá hverjum og hvernig er hægt að fá styrki? Sérstök áhersla á þessari kynningu verður lögð á Norræna menningarsjóðinn. Markmið sjóðsins er að efla norrænt menningarsamstarf og er starfssviðið breitt og nær til lista- og menningarsviðsins, jafnt fagfólks sem leikmanna. Einnig verður farið verður farið yfir aðra sjóði tengda norrænu menningarsamstarfi, segir í fréttatilkynningu.

Dagskrá:

Kl. 13.00 - 16:00. Kynntar verða nýjar áherslur Norræna menningarsjóðsins sem taka gildi 1. janúar 2010

Kynnt verða sérstök verkefni Norræna menningarsjóðsins

Umsóknareyðublað sjóðsins verður skoðað og við förum yfir mikilvæg atriði varðandi umsóknir til sjóðsins.

Umsækjandi segir frá reynslu sinni af umsóknarferlinu.

Aðrir norrænir sjóðir kynntir.

Kaffi, spurningar og umræður

Um kynningu sjá: Stefán Baldursson óperustjóri og stjórnarmeðlimur Norræna menningarsjóðsins, María Jónsdóttir forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar og George Hollanders listamaður. Skráningar í síðasta lagi 13. okt. 2009, kl. 12:00 hjá Maríu Jónsdóttur Norrænu upplýsingaskrifstofunni. Tölvupóstfang mariajons@akureyri.is

Nýjast