Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra leiðir áfram lista sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, Njáll Trausti Friðbertsson verður í öðru sæti listans en aðeins munaði nokkrum atkvæðum á honum og Valgerði Gunnarsdóttur, sem hafnaði í þriðja sæti. Þetta kemur fram í Twitter færslu Sjálfstæðisflokksins um úrslit prófkjörs í Norðausturkjördæmi.
Morgunblaðið greindi fyrst frá niðurstöðu úr kjöri um efstu tvö sætin.
Arnbjörg Sveinsdóttir verður í fjórða sæti, Elvar Jónsson í fimmta sæti og Melkorka Ýr Yrsudóttir í því sjötta. Kosið var um sex efstu sætin, hvert um sig. Tíu frambjóðendur hafa gefið kost á sér. Kjörnefnd ber fram tillögu að skipan listans í heild á morgun.