Kristján Þór hlaut afgerandi kosningu í 1. sætið hjá Sjálfstæðisflokknum

Kristján Þór Júlíusson alþingismaður hlaut afgerandi kosningu í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi sem fram fór í gær. Hann var reyndar sá eini sem gaf kost á sér í fyrsta sæti.  Mun meiri barátta var um annað sætið en það sæti hlaut Tryggvi Þór Herbertsson, Arnbjörg Sveinsdóttir alþingismaður hafnaði í þriðja sæti.  

Á kjörskrá við lok kjörfundar voru 3.949 manns. Atkvæði greiddu 2.041 og er það  51,7 % kosningaþátttaka. Auðir og ógildir seðlar voru 41. Tíu manns buðu sig fram í prófkjörinu og kosið var um 6 efstu sætin. 

Niðurstöður eru eftirfarandi::

1.   í fyrsta sæti Kristján Þór Júlíusson með 1477 atkvæði

2.  (í 1.-2. sæti) Tryggvi Þór Herbertsson með 971 atkvæði

3.  (í 1.-3. sæti) Arnbjörg Sveinsdóttir með 868 atkvæði

4.  (í 1.-4. sæti) Björn Ingimarsson með 816 atkvæði

5.  (í 1.-5. sæti) Soffía Lárusdóttir með 999 atkvæði

6.  (í 1.-6. sæti) Anna Guðný Guðmundsdóttir með 1220 atkvæði

Nýjast