Þær hafa hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir leik sinn og mikla umfjöllun í Noregi og eru nú á tónleikaferð um Norðurlöndin. Alls halda þær 15 tónleika en aðeins tvenna á Norðurlandi, en seinni tónleikarnir norðan heiða verða í Skútustaðakirkju í Mývatnssveit sunnudaginn 19. júlí kl. 21.00. Aðgangur er ókeypis og óhætt að mæla með þessum óvenjulega tónlistarviðburði.