Kjarnafæði Norðlenska Verðskrá sauðfjár hækkar að jafnaði um ríflega 5 %

Kjarnafæði Norðlenska hefur gefið út verðskrá fyrir komandi sauðfjársláturtíð Mynd  Atli Vigfússon
Kjarnafæði Norðlenska hefur gefið út verðskrá fyrir komandi sauðfjársláturtíð Mynd Atli Vigfússon

Kjarnafæði Norðlenska hefur gefið út verðskrá fyrir komandi sauðfjársláturtíð.

Flokkar innan verðskrár hækka mismikið en að jafnaði um 5,1% miðað við grunnverð síðasta árs. Álagsgreiðslur í fyrstu vikum sláturtíðar verður með sama hætti og síðasta ár, en ekki verður greitt álag á dilka undir 13,5 kg.

Með þessari breytingu vill félagið hvetja bændur til að bata smærri lömb og mæta vilja markaðarins um dilka yfir þessari þyngd. Líkt og á síðasta ári verður greitt 8% álag ofan á verðskrá haustsins samhliða útgreiðslu innleggs.

Nýjast