Kjarnafæði Norðlenska kaupa B Jensen

Kjarnafæði Norðlenska eiga nú B Jensen  Mynd GN
Kjarnafæði Norðlenska eiga nú B Jensen Mynd GN

Kjarnafæði Norðlenska gekk frá kaupum á sláturhúsi, kjötvinnslu og verslun B. Jensen í seinustu viku.

Kaup þessi höfðu lengi verið fyrirhuguð og skipulögð, en vegna óvissu um lögmæti búvörulaga, sem sett voru síðastliðið vor, var ekki gengið fra þeim fyrr en nú. Hæstiréttur hefur nú úrskurðað lögin gild og lögmæt, og því var hægt að ganga frá kaupunum.

Ekki hefur enn verið tilkynnt um hvernig staðið verður að áframhaldandi rekstri eininga Kjarnafæðis Norðlenska en við þessi kaup ræður félagið nú yfir tveimur stórgripasláturhúsum í Eyjafirði.

Á  Instagram reikningi B.Jensen kemur fram í dag að verslun þeirra loki þann 13 júni n.k, jafnframt  þvi þakka eigendur og starfsfólk viðskiptavinum kærlega fyrir samfylgdina s.l. 27 ár

Nýjast