Kevin Keegan er á meðal sérfræðinga á ráðstefnunni Business and Football sem stendur nú yfir í Hörpu.
Keegan ræddi m.a. um leiðtogahæfni og sagði að á tíma sínum hjá Liverpool hefðu leikmenn ekki lært fótbolta. Þeir hefðu lært á lífið.
Keegan spilaði á ferli sínum meðal annars með Hamburg í Þýskalandi, Liverpool, Southampton og landsliði Englands. Þeim liðum sem gekk vel áttu eitt sameiginlegt. Það voru ekki einn eða tveir leiðtogar í liðinu heldur fjórir eða fimm. Góður leiðtogi segir ekki hvað á að gera, heldur sýni það.
Keegan Sló mikið á létta strengi í ræðu sinni, sagði svo að hann væri viss um að Ísland myndi vinna EM í Frakklandi í sumar, en þar var honum eflaust fúlasta alvara. Hann vísaði til ótrúlegs ævintýris Dana árið 1992 og Grikkja 2004. Tólf ár hefðu liðið á milli og aftur væru liðin tólf ár.
„Ég veit ekki hvernig þið munuð fara að því en Ísland mun vinna," sagði hann. /epe
Meðal þátttakenda á ráðstefnunni eru: