Á setningarhátíðinni flutti G. Ómar Pétursson nefndarmaður í Arctic Open nefndinni ávarp, hann bauð þátttakendur velkomna til leiks og kynnti leikreglur mótsins. Þá var boðið upp á hlaðborð með norðlenskum veitingum. Fyrsti ráshópur verður ræstur kl. 16 í dag og þá leiknar 18 holur og frá kl. 16 á morgun föstudag, eru leiknar aðrar 18 holur fram á rauða nótt. Leikið er eftir Stableford punktakerfi með og án forgjafar auk þess sem verðlaun eru veitt fyrir besta árangur í kvenna- og öldungaflokki án forgjafar. Samhliða leik er spiluð liðakeppni. Fjórir eru saman í liði og valið er í liðin af handahófi.
Lokahóf Arctic Open á laugardagskvöld er sannkölluð stórveisla þar sem verðlaun verða afhent og boðið upp á skemmtiatriði. Í lokahófinu mun Friðrik V. matreiðslumeistari bjóða veislumat unninn úr hráefnum frá sjávarútvegs- og matvælafyrirtækjum á Eyjafjarðarsvæðinu.