Í dag mánudag, hefst kennsla í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri. Þetta er í fyrsta skipti sem námið er kennt á háskólastigi hér á landi en síðasta útskrift úr Lögregluskólanum fór fram 26. ágúst síðastliðinn.
Tæpum þremur vikum eftir að mennta- og menningarmálaráðherra ákvað að fela Háskólanum á Akureyri námið á háskólastigi – og rúmlega 7 vikum eftir að óskað var eftir þátttökutilkynningum vegna námsins – hefja nú liðlega 150 manns námið alls staðar að af landinu.
Mennta- og menningarmálaráðherra mun ávarpa nýnema við opnunarhátíðina ásamt rektor, Eyjólfi Guðmundssyni, Frímanni B. Baldurssyni, varaformanni Landssambands lögreglumanna og Ólafi Erni Bragasyni, forstöðumanni Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu. MSSL mun annast starfsnámið í samvinnu við HA en allt að 40 nemar komast inn í starfsnámið.
„Það er mikill heiður að fá að segja nokkur orð við upphaf lögreglufræðináms á Íslandi. Mikilvæg tímamót í menntun lögreglumanna eiga sér stað þennan dag og mun ég að sjálfsögðu segja örfá orð til hvatningar fyrir nemendur!“ segir Ólafur Örn Bragason.
Rektor Háskólans á Akureyri telur yfirfærslu námsins á háskólastig í góðum höndum í HA. „Við höfum reynsluna af hjúkrunar- og iðjuþjálfunarfræði og því vitum við mæta vel að það er mikilvægt að koma til móts við starfandi lögreglumenn með próf úr Lögregluskólanum. Þeir hafa nú þegar sýnt náminu mikinn áhuga og í boði er að taka diplómagráðu á tveimur árum samhliða vinnu“, segir hann ennfremur.
Gert er ráð fyrir því að nemendur verði í tveggja daga lotu þar sem farið verður yfir skipulag námsins og nemendur fá tækifæri til að kynnast skólanum, starfsfólki og þjónustunni í HA.