Grunnskólakennarar á Akureyrir eru ósáttir við fjárhagsúthlutun bæjaryfirvalda og hópur þeirra hefur skorað á yfirvöld að endurskoða málið.
„Eftir að fjárhagsúthlutun var gefin út til skólastjórnenda grunnskóla Akureyrarbæjar í síðustu viku er komin upp sú staða að ekki er lengur við unað. Ef miða skal við fjárframlög til grunnskóla bæjarins skólaárið 2016-2017 sjáum við ekki fram á að hægt sé að sinna hefðbundnu skólastarfi án þess að það komi niður á gæðum þess.“ Þetta kom fram í yfirlýsingu frá hópnum, sem er ósáttur við hversu þrengt sé að skólastofnunum bæjarins í fjárútlátum undan farin ár og ekki sé viðunandi að sú þróun haldi áfram.
ADHD og fleiri greiningar
„Skóli án aðgreiningar kallar á að hverjum einstaklingi sé mætt á hans forsendum. Hvernig á að vera hægt að kenna stórum hópi nemenda í bekk á yngsta stigi með lítinn sem engan stuðning sér við hlið eins og lagt er upp með fyrir næsta skólaár?,“ segir í yfirlýsingunni.
„Í þessum bekk eru miklar líkur á að þar sé m.a. einn nemandi greindur með ADHD, annar með athyglisbrest, einn á einhverfurófi, einn sé tvítyngdur, annar sem búi við erfiðar heimilisaðstæður, einn nemandi glími við lesblindu, einn sé með kvíðaröskun og að annar sé talnablindur og svo eru líkur á að einhverjir nemendur eigi við hegðunarerfiðleika eða geðræn vandamál að stríða. Þetta er veruleikinn! Já kaldar staðreyndir sem við byggjum á reynslu okkar síðastliðin ár í starfi. Nú spyrjum við: Hvernig eigum við að geta komið til móts við allan þennan stóra hóp nemenda í umsjón eins kennara? Hvernig á kennari á yngsta stigi sem kennir nemendum á aldrinum 5-9 ára að geta sinnt öllum nemendum sínum eins og honum ber skylda til?“