11. desember, 2008 - 15:21
Nítján einstaklingar og félagasamtök tóku á móti styrkjum úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA í gær.
Það var Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA sem afhenti styrkina. Úthlutað var úr flokki almennra styrkja og
þátttökuverkefna samtals að upphæð 4,3 milljónir króna.
Fram kom í máli Halldórs að auglýst hafi verið eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum í nóvember sl. og bárust 114
styrkumsóknir, 75 umsóknir í flokki almennra umsókna og 39 umsóknir um þátttökuverkefni. Fjórtán aðilar hlutu almennan
styrk, hver að upphæð 150 þúsund krónur og 5 aðilar hlutu þátttökustyrk, en til úthlutunar í þeim flokki voru 2,2
milljónir króna.
Flokkur almennra styrkja. Hver styrkur kr. 150.000,-. Eftirtaldir fengu úthlutun:
- Ólafur Kárason, vegna síldartónleika á Siglufirði 2009
- Myndlistarfélagið, félag myndlistarmanna á Akureyri
- Listalíf/Gísli Sigurgeirsson, vegna bókar og heimildarmyndar um sr. Pétur Þórarinsson
- Kirkjukór Möðruvallaklaustursprestakalls, til tónleikahalds
- Litla ljóðahátíðin, til að halda ljóðahátíð- Populus Tremula
- Útgerðarminjasafnið á Grenivík, til að koma upp sýningu um línuútgerð
- Jassklúbbur Ólafsfjarðar, til að halda tónleikahátíð í Ólafsfirði
- Ferðafélag Akureyrar og Ferðafélagið Hörgur, vegna gerðar gönguleiðakorts af Tröllaskaga
- Stúlknakór Akureyrarkirkju, til að gefa út geisladisk
- Karlakór Dalvíkur, vegna tónleikahalds
- Bjarni E. Guðleifsson , vegna útgáfu bókarinnar „Á fjallatindum"
- Davíð Hjálmar Haraldsson, vegna útgáfu ljóðabókar
- Urðarkirkja Svarfaðardal, vegna endurbyggingar á kirkjunni
- Brynjar Halldórsson, til útgáfu bókarinnar „Ættir Þingeyinga"
Eftirtaldir hlutu styrk úr flokki þátttökuverkefna:
- Zophonías Jónmundsson, til endurbyggingar á fjallaskálanum á Heljardalsheiði - kr. 150.000.
- Íþróttafélagið KA, til að bjóða atvinnulausu fólki upp á íþróttir og afþreyingu - kr. 500.000.
- Amtmannssetrið á Möðruvöllum, til uppbyggingar setursins - kr. 700.000.
- Gestur Einar Jónasson, til að gera sjónvarpsmynd um líf og starf á Akureyrarflugvelli - kr. 150.000.
- Náttúrusetrið á Húsabakka, vegna stofnunar setursins - kr. 700.000.