KEA hefur, ásamt fleiri fjárfestum, fest kaup á Hafnarstræti 98. Fyrri eigendur hússins höfðu áformað niðurrif á því
þegar húsafriðunarnefnd friðaði húsið síðasta haust og hefur nokkur umræða um húsið fylgt í kjölfarið.
Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, segir markmiðið að ráðast strax í endurbætur á húsinu og koma því
í upphaflegt horf samhliða því sem möguleikar á viðbyggingu verða skoðaðir. Fyrirhugað er að húsnæðið verði
innréttað sem skrifstofuhúsnæði.