Kannabisræktun stöðvuð og hald lagt á efnablöndur

Lögreglan á Norðurlandi eystra framkvæmdi í gærdag húsleit í húsnæði á Akureyri eftir að kæra hafði verið lögð fram þess efnis að þar væri búin til lyfjablanda til lækninga án þess að tilskilin leyfi væru til staðar. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar. Hald var lagt á nokkra tugi lítra af Natriumchlorit,  minniháttar magn af sítrónusýru og lyfjaglös undir vökva. Þá var einnig framkvæmd húsleit á sveitabæ í umdæmi lögreglunnar þar sem hald var lagt á 58 kannabisplöntur og um 100 grömm af kannabisefnum. Einnig var lagt hald á búnað til ræktunarinnar. Þrír menn voru handteknir í tengslum við málið og sleppt að loknum yfirheyrslum.  Bæði málin eru til rannsóknar hjá lögreglu.

 

Nýjast