Í mörg ár hefur Karl komið á vinnustofu Rósu Kristínar Júlíusdóttur kennara og myndlistakonu þar sem þau hafa unnið
saman að listsköpun, bæði sem kennari og nemandi en fyrst og fremst sem félagar og vinir í listinni. Þau hafa haldið sameiginlegar listsýningar og
tekið þátt í margskonar samsýningum. Einnig hafa þau haldið fyrirlestra um samvinnu sína í tengslum við sýningarnar og á
ráðsenfu um menntamál. Karl er alvarlega mál- og hreyfihamlaður ungur maður sem býr yfir góðum skilningi. Þrátt fyrir fötlun
sína tekst Kalla að koma til skila þeirri næmu listrænu tilfinningu sem býr innra með honum. Hann útskrifaðist af myndlistabraut
Verkmenntaskólans á Akureyri vorið 2007 og hefur ekki slegið slöku við í myndlistinni. Vorið 2008 tók hann þátt í
listahátiðinni List án Landamæra með sýningunni Snúist í hringi sem var í Ketilhúsinu á Akureyri.
Allir eru velkonnir á opnunina á morgun en sýningarstjóri er Jóna Hlíf Halldórsdóttir.