Fimmtudaginn 7. apríl kl. 20 halda Stúlknakór Akureyrarkirkju og Kammerkórinn Ísold sameiginlega tónleika í Akureyrarkirkju.
Efnisskráin er afar fjölbreytt og gæti komið á óvart. Meðal annars verður flutt lagið "Is it true" í glænýrri útsetningu Eddu Bjarkar Jónsdóttur söngkonu sem gerð var sérstaklega fyrir kórana, önnur hressileg júróvisjónlög og fallegar vögguvísur eftir konur. Óvæntir slagarar verða líka fluttir í skemmtilegum útsetningum. "Heyr mína bæn" verður á sínum stað ásamt "Þér við hlið" sem mun skapa hugljúfa stemningu í fallegri kirkju.
Hljóðfæraleikararnir Helena Guðlaug Bjarnadóttir, Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, Stefán Ingólfsson, Haukur Pálmason og Kristján Edelstein leika með kórunum og stjórnandi er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
Aðgangur ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum.
Kammerkórinn Ísold er sönghópur stúlkna og ungra kvenna á aldrinum 17-24 ára. Æfingar eru reglulegar og skipulagðir eru tónleikar í samstarfi við aðra sönghópa ásamt því að fara sem víðast og syngja sem oftast stuttar efnisskrár fyrir fjölskrúðuga áheyrendahópa. Ísold hefur sungið á nokkrum tónleikum í Hofi í vetur, m.a. með rokkhljómsveitinni Dimmu, söngkonunum Kristjönu Arngrímsdóttur og Gretu Salóme, og á jólatónleikunum Norðurljósin í desember. Að auki sungu stúlkurnar tónlist Atla Örvarssonar í upptökum fyrir myndina Bilal sem verið er að frumsýna um þessar mundir.
Í Stúlknakór Akureyrarkirkju eru 18 stúlkur á aldrinum 14-17 ára. Kórinn tekur þátt í helgihaldi í Akureyrarkirkju auk þess að syngja reglulega á tónleikum með ýmsum listamönnum, ásamt því að halda sjálfstæða tónleika. Stúlknakórinn hefur árum saman verið áberandi í sönglífi bæjarins. Hann hefur sungið á Ráðhústorgi þegar kveikt er á jólatrénu, í Hofi með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, á Glerártorgi á aðventunni og víðar.
Stúlknakórinn fór í söngferð til Danmerkur í júní 2015 og kom þar á vinasambandi við stúlknakór í Kolding sem er á leið til Akureyrar í október næstkomandi. Að auki hélt Stúlknakórinn tónleika í Helligåndskirken sem stendur við hið fræga Strik í Kaupmannahöfn. (Akureyri.is)