Jónína Rós er fædd og uppalin í Hafnarfirði, lauk kennaranámi við KHÍ vorið 1982 og flutti þá um haustið á Hallormsstað og hóf kennslu við Hallormsstaðaskóla. Þar starfaði hún til ársins 2001 er hún flutti til Egilsstaða og hefur síðan kennt síðan við Menntaskólann á Egilsstöðum. Jónína Rós hefur lokið BA prófi í sérkennslufræðum og er nú í mastersnámi í þeirri grein.
Hún situr í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs og hefur gegnt formennsku í Skipulags- og byggingarnefnd og verið formaður bæjarráðs frá áramótum 2007. Áður hafði hún setið í fræðslunefnd og er nú stjórnarformaður Vísindagarðsins á Egilsstöðum og nýsköpunarsjóðsins Fjárafls sem styrkir nýsköpunarstarf í dreifbýli Fljótsdalshéraðs, auk þess er hún formaður Svæðisráðs um málefni fatlaðra á Austurlandi, situr í Umferðarráði og Samgöngunefnd sambands sveitafélaga á Austurlandi.
Jónína Rós á sæti í flokkstjórn Samfylkingarinnar og í varastjórn kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi.