Jóhanna setur fyrsta fund nýrrar ríkisstjórnar á Akureyri

Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna kom saman til fyrsta fundar í Ráðhúsinu á Akureyri nú í hádeginu. Eins og fram hefur komið mun þetta vera í fyrsta skipti sem almennur ríkisstjórnarfundur er haldinn utan Reykjavíkur en fundir hafa verið haldnir á hátíðarstundum á Þingvöllum.  

Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að með staðarvalinu vilji ríkisstjórnin undirstrika að hún er ekki bara stjórn þeirra sem á höfuðborgarsvæðinu búa, heldur landsins alls. Ekki sé útilokað að fleiri fundir en þessi verði haldnir utan Reykjavíkur þegar fram líði tímar. Að fundi loknum sitja forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar fyrir svörum blaðamanna í Háskólanum á Akureyri kl. 14:30.

Nýjast