Jenný Lilja er þúsundasti íbúi Eyjafjarðarsveitar

Hjónin Ólöf Huld Matthíasdóttir og Árni Kristjánsson, Vallartröð 6 í Eyjafjarðarsveit, eignuðust dóttur 7. ágúst sl. sem hlotið hefur nafnið Jenný Lilja. Nú hefur komið í ljós að Jenný Lilja er þúsundasti íbúi sveitarfélagsins. Nokkrum dögum síðar, eða 13. ágúst, eignuðust hjónin Telma Bára Vilhelmsdóttir og Hilmar Sigurpálsson, Leyningi, þríburana Dagbjörtu Lilju, Berglindi Evu og Kristján Sigurpál. Af þessu tilefni þótti sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar ástæða til að heiðra foreldra og börn með því að færa foreldrunum blómvönd og börnunum sparisjóðsbók með upphæð sem jafngildir hálfs vetrar námi í Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Vonandi verður verðlagsþróunin ekki óhagstæðari en svo að upphæðin dugi vel fyrir námskostnaðinum þegar að því kemur að börnin vilji fara að stunda tónlistarnám, segir á vef Eyjafjarðarsveitar, þar sem fjallað er um málið. Það er sveitarstjórn sérstök ánægja að bjóða þetta unga fólk velkomið í sveitarfélagið í þeirri von að það eigi eftir að vaxa og dafna með sveit sinni eða hvar sem leið þess liggur um ókomin ár, segir þar ennfremur. Hinn 1. desember sl. voru íbúar Eyjafjarðarsveitar 1009 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar og hafði fjölgað um 9 frá árinu 2006.

Nýjast