“Jákvæð viðbrögð” um veiðigjaldið?

Heimir Örn Árnason.
Heimir Örn Árnason.

Heimir Örn Árnason skrifar

 

Þann 18. júní hélt Eydís Ásbjörnsdóttur, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, því fram á Alþingi að stjórnarliðar hefðu fengið „jákvæð viðbrögð“ sveitarstjórnarfólks um land allt við tvöföldun veiðigjalda og hvatti stjórnarandstöðuna til að „tala við sitt fólk“.

Við – kjörnir fulltrúar í stærstu sjávarútvegssveitarfélögum kjördæmisins hennar – erum einmitt „fólkið“ sem þingmaðurinn á að hafa talað við. Umsagnir okkar og kollega um þetta sama frumvarp segjast hins vegar annað:

Hvað sögðu sveitarfélögin í raun?

Sveitarfélag

Tilvitnun úr umsögn

Akureyrarbær

Hækkunin „grefur undan fjárfestingu og stöðugleika í atvinnulífi bæjarins.“

Norðurþing

Varar við verulegri tekjuáhættu og „óþolandi misræmi“ þar sem stærstur hluti hækkunarinnar lendir á kjördæminu.

Langanesbyggð

Bendir á að gjöldin „geta grafið undan byggðafestu“ þar sem sjávarútvegur standi undir grunni sveitarfélagsins.

Vopnafjarðarhreppur

Telur frumvarpið setja „hagsmuni samfélagsins í uppnám“ með skertum fjárfestingartækifærum og færri störfum.

Fjarðabyggð

Bæjarráð „mótmælir harðlega“ að hækkunin bitni einkum „á landsbyggðinni“.

Vestmannaeyjabær

„Óásættanlegt að leggja fram tvöföldun veiðigjalda án mats á áhrifum á sveitarfélög; getur orðið gífurlegt högg.“

Vesturbyggð

Varar við að gjaldið verði „of íþyngjandi fyrir smærri útgerðir“ og krefst skýrra svara um hvernig innheimtan nýtist byggðunum.

Ísafjarðarbær

Hækkunin sé „bein ógn við byggðafestu“ á Vestfjörðum.

Bolungarvíkurkaupstaður

Hefur „áhyggjur af aukinni gjaldtöku og mögulegri samþjöppun“ sem leiði til fækkunar starfa og minni samfélagsþátttöku.

Snæfellsbær

Telur gjaldið „kæfa nýsköpun og áform um fjölgun starfa.“

Suðurnesjabær

Varar við „skaðlegum áhrifum á lítil og meðalstór sjávarútvegsfyrirtæki.“

Akraneskaupstaður

Kallar eftir áhrifamati; „Óvissa skapar fyrirtækjum erfiðleika… stöðugleiki í starfsumhverfi sjávarútvegs skiptir verulega miklu máli.“

Dalvíkurbyggð

Segir með ólíkindum að hækkunin sé talin áhrifalítil; vísar til þess að sjávarútvegur standi undir 34% launa í sveitarfélaginu.

Grindavíkurbær

Minnir á náttúruhamfarir og varar við að hækkunin bæti 400m.kr. á útgerðir sem þegar glími við fordæmalausar áskoranir.

Þetta minnir lítið á „jákvæð“ viðbrögð – nema orðið hafi skipt um merkingu.

Hún hafði þetta rétt… árið2018

Þann 2. nóvember 2018, sem formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, undirritaði Eydís bókun sem taldi 10 % aukaálag á uppsjávarútgerðir „ósanngjarnan landsbyggðarskatt“ sem gengi beint á sveitarfélög með öflugan sjávarútveg. Sömu rök heyrist nú – en nú kallar hún viðbrögðin „jákvæð“.

Allt einn misskilningur

Að lýsa ofangreindum umsögnum sem „jákvæðum viðbrögðum“ eru einfaldlega alger öfugmæli.

Sami þingmaður hefur líka lýst ánægju með breytingar á strandveiðikerfinu sem færa kvóta frá Norðaustur‑ til Norðvesturkjördæmis. Allt grefur þetta undan núverandi kerfi sem skapar atvinnu og verðmæti í kjördæminu og sjávarútvegi um allt land. Kerfi sem skapar byggðafestu og veitir heilsársstörf.

Ég hvet Alþingi til að hlusta á málefnalegar athugasemdir sveitarfélaganna áður en lokaniðurstaða er fest á blað.

Heimir Örn Árnason

Oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, formaður bæjarráðs á Akureyri og

stjórnarmaður í Samtökum sjávarútvegsfélaga.

 

Nýjast