Jafnt hjá KA-Fjarðabyggð

KA og Fjarðabyggð gerðu jafntefli nú í kvöld í fyrstu umferð 1.deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu en leikið var í Boganum. Fyrsta mark leiksins kom strax á 3.mínútu og var það Guðmundur Atli Steinþórsson sem kom Fjarðabyggð í 1-0. Arnar Már Guðjónsson jafnaði metinn fyrir heimamenn á 13.mínútu með glæsilegum skalla eftir aukaspyrnu frá Dean Martin. Staðan í hálfleik 1-1.

Á 59.mínútu kom Steinn Gunnarsson KA mönnum yfir með glæsilegu skoti eftir að Fjarðabyggð höfðu bjargað á línu. En 10.mínútum fyrir leikslok tókst Fjarðabyggð að jafna metinn með marki frá Vilbergi Marínó Jónassyni.

Lokatölur 2-2 og KA menn eflaust svekktir með að landa ekki þremur stigum í kvöld.

Nýjast