Íþróttamaður Akureyrar 2007 krýndur í kvöld

Íþróttamaður Akureyrar 2007 verður krýndur í hófi í Ketilhúsinu í kvöld kl. 20.00. Að venju eru margir útvaldir en aðeins einn stendur uppi sem sigurvegari í kjörinu. Alls eru 12 íþróttamenn frá jafn mörgum félögum í bænum tilnefndir að þessu sinni. Þá verður skrifað undir samninga Afreks- og íþróttasjóðs ÍRA við íþróttamenn og veittar heiðursviðurkenningar ÍRA. Kynnir og ræðumaður er Skapti Hallgrímsson blaðamaður.

 

Hér fylgir listi yfir tilnefningar frá aðildarfélögunum í stafrófsröð:

Audrey Freyja Clarke Skautafélag Akureyrar

Andri Snær Stefánsson Akureyri - handboltafélag

Baldvin Ari Guðlaugsson Léttir

Bjarki Gíslason UFA

Bryndís Rún Hansen Sundfélagið Óðinn

Björn Guðmundsson Golfklúbbur Akureyrar

Davíð Búi Halldórsson KA

Dagný Linda Kristjánsdóttir Skíðafélag Akureyrar

Haukur Svansson Fimleikafélag Akureyrar

Kristján Skjóldal Bílaklúbbur Akureyrar

Óðinn Ásgeirsson Þór

Stefán Thorarensen Íþróttafélagið Akur

Nýjast