Íslensku vetrarleikunum 2016 (Iceland Winter Games) lauk um helgina. Hátíðin stóð frá 24. mars til 3. apríl með fjölda glæsilegra viðburða- og vetrarferða. Þetta var þriðja árið sem mótið er haldið og var hápunktur hátíðarinnar um nýliðna helgi þegar boðið var upp á Meistaramót Íslands á snjóbrettum, fjallabrun, snjósleðaspyrnu og ýmislegt fleira.
Ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi buðu upp á fjölbreytt úrval ferða og afþreyingar meðan á leikunum stóð. Má þar nefna snjósleða- og snjóþrúguferðir, heimsóknir í íshelli, reiðtúra, þyrluskíði og margt, margt fleira.
Sérhæft markaðsfyrirtæki var fengið til að aðstoða við kynningarmál fyrir hátíðina á erlendum vettvangi og kom fjöldi fjölmiðla til Akureyrar í tilefni leikanna. Bandaríska sjónvarpstöðin 360 Media Adventures fjallaði sérstaklega um mótið, einnig Grind TV, Outside Television og Yahoo Sports. Hingað kom einnig einn þekktasti skíðablaðamaður Bretlands, Arnie Wilson, sem skrifar m.a. fyrir Daily Mail og Huffington Post. (Akureyri.is)
Fréttir erlendra miðla, myndbönd og myndir má sjá á Facebooksíðu Iceland Winter Games