Íslensk verðbréf bjóða á leik Þórs og Snæfells í kvöld

Í kvöld fer fram síðasta umferðin í Iceland Express deild karla í körfubolta og þá taka Þórsarar á móti nýbökuðum bikarmeistum Snæfells í íþróttahúsi Síðuskóla kl. 19.15. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir heimamenn í Þór en með sigri tryggja þeir sér 8. sætið í deildinni sem gefur þeim keppnisrétt i úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn. Íslensk verðbréf hafa ákveðið að leggja körfuknattleiksdeild Þórs lið með því að bjóða öllum frítt á leikinn. Þór, Tindastóll og Stjarnan berjast um áttunda og síðasta sætið í úrslitakeppninni. Þór er með 18 stig í 8. sæti deildarinnar og með sigri á Snæfelli í kvöld er liðið öruggt í úrslitakeppnina. Ef Snæfell vinnur þurfa Þórsarar að stóla á að Hamar vinni ÍR og Tindastóll leggi Stjörnuna. Þá væru Þór, ÍR og Tindastóll öll með 18 stig en Tindastóll sæti eftir í 9. sæti deildarinnar. Með því að bjóða Akureyringum og nærsveitamönnum á völlinn í kvöld vilja Íslensk verðbréf leggja sitt af mörkum til þess að Þórsarar nái markmiði sínu með góðum stuðningi áhorfenda.

Nýjast