Með sama hætti og hin íslenska landsbyggð þarf á jafnaðarhugsjóninni að halda, er aðild að Evrópusambandinu efnhagsleg og félagsleg nauðsyn fyrir íbúa þessa lands. Að loknum ragnarökum nýfrjálshyggjunnar, sem við nú verðum vitni að, verður ríkisstjórnin að skilgreina samningsmarkmið aðildarviðræðna vegna inngöngu í ESB. Að þeim loknum fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um fulla aðild að Evrópusambandinu og upptöku Evru sem framtíðar gjaldmiðils þjóðarinnar, segir í ályktun sem Samfylkingin á Akureyri, 60+ á Akureyri og Ungir jafnaðarmenn á Akureyri sendu frá sér.