Landkönnunarverðlaun Leifs Eiríkssonar voru veitt í níunda sinn af Könnunarsafninu á Húsavík í dag. Indverska geimvísindastofnunin ISRO hlaut verðlaunin fyrir Chandrayaan-3 leiðangur sinn að suðurpóli tunglsins. Sendiherra Indlands á Íslandi, Balasubramanian Shyam, tók við verðlaununum frá safninu fyrir hönd ISRO, en Sreedhara Somanath forstjóri geimvísindastofnunarinnar flutti að því loknu ávarp frá Bangalore á Indlandi.